Sterkari Hugur
Þessi fyrirlestur kynnir undirstöður hugrænnar þjálfunar, hvað hún er, af hverju hún skiptir máli og hvernig íþróttafólk getur notað fimm grunn aðferðir til að byggja upp sjálfstraust, halda fókus og undirbúa sig fyrir keppnir. Í boði er vinnustofa með hagnýtum æfingum.
Stöndum okkur undir pressu
Þessi fyrirlestur kennir hugrænar aðferðir sem íþróttafólk getur notað til að undirbúa sig fyrir keppnir, halda ró undir pressu og komast í flæði þegar mest á reynir. Í boði er vinnustofa með hagnýtum æfingum.
Keppnisstress - vinur eða óvinur?
Þessi fyrirlestur hjálpar íþróttafólki að skilja stress betur, af hverju það kemur upp og hvernig má snúa því sér í hag í krefjandi æfingum og keppnum.
Besta baklandið - Hlutverk foreldra og þjálfara
Þessi fyrirlestur er ætlaður foreldrum og þjálfurum sem vilja styðja við íþróttafólk á öllum aldri á þann hátt sem styrkir sjálfstraust, hvatningu og vellíðan og skapar jákvætt umhverfi fyrir árangur.

©2025 Annerud Media AB
Ég býð upp á fyrirlestra og vinnustofur um hugræna færni fyrir íþróttafélög, akademíur og sérsambönd. Þau byggja á minni reynslu sem þrefalds Ólympíufara og nýjustu rannsóknum í íþróttasálfræði. Markmiðið er að hjálpa íþróttafólki að byggja upp seiglu, takast á við pressu og standa sig betur á sama tíma og þau njóta íþróttarinnar meira og líður betur.
Hér fyrir neðan finnurðu yfirlit yfir fyrirlestra og vinnustofur sem eru í boði fyrir íþróttahópa. Fyrir fyrirspurnir og bókanir geturðu sent póst á [email protected].