Ef þú ert að leita að fyrirlestri um hvernig við getum sett okkur markviss markmið, haft rétt hugarfar í keppni, tekist á við meiðsli og samræmt íþróttir og nám þá er fyrirlesturinn Leiðin Til Afreka eitthvað fyrir þig.
Í þessum klukkutíma langa fyrirlestri deili ég minni reynslu og þeim aðferðum sem ég nýtti mér til að komast á þrenna Ólympíuleika og klára doktorspróf samtímis. Ég fer sérstaklega í það hvernig þitt íþróttafólk getur nýtt sér þessar aðferðir í sínu lífi til að skara fram úr og ná sem bestum árangri í sinni íþrótt. Innifalið er verkefnahefti þar sem við komum því sem við tölum um í verk.
Hvernig fer fyrirlesturinn fram?
1. Ég mæti á svæðið (þegar ég kem til landsins)
2. Ég held fyrirlesturinn í streymi
3. Þú kaupir upptöku af fyrirlestrinum fyrir þinn hóp
Þetta hefur fólk að segja um Leiðina til Afreka
Dr. Hafrún Kristjánsdóttir
Íþróttasálfræðingur og deildarforseti íþróttafræðideildar Háskólans í Reykjavík
Ásdís sagði nemendum frá ferlinum og þeim áskorunum sem hún hefur mætt lista vel. Fyrirlesturinn jók skilning nemenda á hvaða verkfærum er hægt að beita til að ná árangri i íþróttum og lífinu sjálfu.
Frímann Ari Ferdinandsson
Formaður Afreks- og landsliðsnefndar Badmintonsambands Íslands
Ásdís var með fyrirlestur fyrir landsliðsfólkið okkar um hvernig hún æfir, hvernig hún setur sér markmið og vinnur með þau, hvernig hún undirbýr sig fyrir keppni og hagar sér í keppni. Ásdís gerði þetta listavel enda með mikla reynslu af löngum íþróttaferli auk þess sem hún er auðvitað frábær fyrirmynd fyrir íþróttaæsku landsins.
Kári Jónsson
Yfirþjálfari Meistaraflokks Ármanns í frjálsum
Fyrirlesturinn var fróðlegur og áhugavekjandi um leið og hann gaf unga fólkinu góðar leiðbeiningar um það mikilvægasta í íþróttum og lífinu sjálfu. Sögurnar gæða fyrirlesturinn miklu lífi auk þess sem áhugi fyrirlesarans fyrir efninu skín í gegn. Frábært!
Anders Walther
Spjótkasts menntun hjá sænska frjálsíþróttasambandinu
Ásdís hélt mjög vel heppnaðan fyrirlestur fyrir unglinga afrekshópinn okkar. Hún talaði af þekkingu og sannfæringu og studdi mál sitt með fagmannlegum fyrirlestri. Hún gaf unglingunum frábær verkfæri til þess að koma ferlinum á næsta stig.
Örvar Ólafsson
Verkefnastjóri Afreks- og Ólympíusviðs ÍSÍ
Ásdís hélt áhugavert erindi fyrir ungt og efnilegt íþróttafólk úr hinum ýmsu íþróttagreinum í Afreksbúðum ÍSÍ. Náði hún vel til krakkanna með hnitmiðuðu og vel fram settu efni.